Fotbolti.net
25.09.26 - 21:37
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Isak og Gyökeres skoruðu - Kvaratskhelia klúðraði víti

Þjóðadeildin: Isak og Gyökeres skoruðu - Kvaratskhelia klúðraði víti
Canon

Mynd: EPA

Það var nóg um að vera í Þjóðadeildinni í kvöld þar sem úrvalsdeildarstjörnurnar Alexander Isak og Viktor Gyökeres skoruðu mörk Svía í sigri gegn Rúmeníu í B-deildinni.
Svíar voru sterkari aðilinn í áhugaverðum slag sem bauð upp á mikla skemmtun í fyrri hálfleik en var afar bragðdaufur eftir leikhlé.

Á sama tíma hafði Úkraína betur á útivelli gegn Dominik Szoboszlai og félögum í Ungverjalandi. Danylo Sikan skoraði eina mark leiksins á 42. mínútu og tókst Ungverjum ekki að svara fyrir sig þrátt fyrir margar marktilraunir.

Robert Lewandowski tókst þá ekki að skora í markalausu jafntefli í Póllandi á meðan Khvicha Kvaratskhelia klúðraði vítaspyrnu í óvætnu tapi hjá Georgíu á heimavelli gegn Norður-Írlandi.

Kvaratskhelia brenndi af vítapunktinum á 65. mínútu og tókst Shea Charles að gera dramatískt sigurmark fyrir gestina afar seint í uppbótartíma - á 99. mínútu leiksins.

Að lokum unnu Armenía og Svartfjallaland heimaleiki í C-deild Þjóðadeildarinnar.

B-deild
Georgía 0 - 1 N-Írland
0-0 Khvicha Kvaratskhelia ('65 , Misnotað víti)
0-1 Shea Charles ('99 )

Ungverjaland 0 - 1 Úkraína
0-1 Danylo Sikan ('42 )
Rautt spjald: Oleksandr Nazarenko, Úkraína ('92)

Pólland 0 - 0 Bosnía og Hersegóvína

Svíþjóð 2 - 1 Rúmenía
1-0 Alexander Isak ('20 )
1-1 Dennis Man ('29 )
2-1 Viktor Gyokeres ('43 )



C-deild
Armenía 2 - 0 Lettland
1-0 Georgiy Harutyunyan ('31 )
2-0 Artur Gharibyan ('75 )

Svartfjallaland 2 - 1 Kýpur
0-1 Marcus Edwards ('55 )
1-1 Nikola Krstovic ('66 , víti)
2-1 Milutin Osmajic ('86 )
Þjóðadeildin: Isak og Gyökeres skoruðu - Kvaratskhelia klúðraði víti
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Isak og Gyökeres skoruðu - Kvaratskhelia klúðraði víti
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.