25.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Totti vildi ekki gefa Dybala tíuna

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Ítalska goðsögnin Francesco Totti segir frá því í nýjustu sjálfsævisögu sinni að hann hafi sagt nei þegar Roma spurði hvort hann væri reiðubúinn til að afhenda Paulo Dybala treyju númer 10 hjá félaginu við formlega athöfn.
Enginn hefur spilað í treyju númer 10 hjá Roma síðan Totti lagði skóna á hilluna og segir Totti að treyjunúmerið sé að bíða eftir réttum aðila til að taka við sér.
„Ég myndi ekki segja að það hafi verið mín ákvörðun að setja treyju númer 10 á ís. Þetta var ákvörðun fólksins," segir meðal annars í bókinni. „Félagið spurði hvort ég væri tilbúinn að afhenda Dybala treyjuna við formlega athöfn og ég svaraði: 'eruði allir heimskir? Þið megið gefa honum treyjuna sjálfir ef þið eruð nógu hugrakkir.'"
Dybala klæddist treyju númer 10 hjá Juventus, sem Alessandro Del Piero notaði á sínum tíma, en fékk ekki leyfi fyrir tíunni hjá Roma. Þess vegna hefur Dybala verið númer 21 síðustu árin.
„Ég hef ekkert á móti Paulo Dybala, hann er frábær sem einstaklingur og sem fótboltamaður, en ég kem ekki nálægt því að gefa honum tíuna. Þið megið gefa honum tíuna ef þið viljið, en ég ætla ekki að gera það."
Þarna er Totti að tala um möguleg viðbrögð Rómverja við að sjá tíuna fara til Dybala, þó að Argentínumaðurinn sé elskaður af stuðningsmönnum.
„Ég vil tala skýrt. Mig langar að einhver taki við tíunni, hún virkar eins og draumur fyrir öll börn Rómar. Mig dreymir á hverjum degi um að sjá nýjan Totti fæðast í Róm, alast upp í Róm og velja Roma sem lífstíðarfélagið sitt. Hann gæti fengið treyjuna. Það er allt annað mál að gefa leikmanni sem kemur frá hinum enda hnattarins þessa treyju. Þessi treyja hefur alltof mikla merkingu fyrir stuðningsmenn félagsins.
„Þessi treyja mun fara til leikmanns sem á vonandi eftir að spila fyrir Roma í 15 eða 20 ár eftir að hann fær tíuna."