Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 25. október 2020 22:35
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Var Xhaka að trufla Schmeichel?
Mikel Arteta var ósáttur eftir 0-1 tap Arsenal gegn Leicester því mark Alexandre Lacazette í fyrri hálfleik var ekki dæmt gilt.

Lacazette skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu og var Granit Xhaka settur í það verkefni að trufla Kasper Schmeichel, markvörð Leicester.

Þegar boltinn fór af haus Lacazette var Xhaka kominn í rangstöðu og mat dómarateymið atvikið þannig að Xhaka hafi enn verið að trufla Schmeichel þegar Lacazette skallaði.

Atvikið er hægt að sjá hér fyrir neðan úr ýmsum sjónarhornum.

Uppfært: Myndbandið hefur verið tekið af Twitter. Hér fyrir neðan má sjá það helsta úr leiknum.


Athugasemdir
banner
banner