Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. nóvember 2020 21:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Gengur illa hjá Rooney - Jón Daði kom inn á
Wayne Rooney, spilandi bráðabirgðastjóri Derby County.
Wayne Rooney, spilandi bráðabirgðastjóri Derby County.
Mynd: Getty Images
Það gengur ekki vel hjá spilandi þjálfaranum Wayne Rooney í Championship-deildinni á Englandi.

Rooney stýrir Derby County til bráðabirgða, en hann er einnig leikmaður og fyrirliði liðsins. Justin Walker, Shay Given og Liam Rosenior eru Rooney til aðstoðar.

Rooney spilaði allan leikinn í kvöld þegar Derby tapaði fyrir Middlesbrough á útivelli, 3-0. Derby situr á botni Championship-deildarinnar með sex stig eftir 13 leiki, en liðið hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum undir stjórn Rooney. Middlesbrough er í sjöunda sæti eftir sigurinn í kvöld.

Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 64. mínútu þegar Milwall gerði jafntefli við Reading á heimavelli, 1-1. Milwall er í tíunda sæti deildarinnar með 19 stig.

Hér að neðan má sjá öll úrslit kvöldsins í Championship-deildinni.

Bristol City 0 - 0 Watford

Coventry 1 - 0 Cardiff City
1-0 Tyler Walker ('54 )

Middlesbrough 3 - 0 Derby County
1-0 Britt Assombalonga ('33 )
2-0 Matt Clarke ('71 , sjálfsmark)
3-0 Marvin Johnson ('83 )

Millwall 1 - 1 Reading
1-0 Jed Wallace ('45 )
1-1 Lucas Joao ('53 )

Swansea 1 - 1 Sheffield Wed
0-1 Adam Reach ('27 )
1-1 Andre Ayew ('60 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner