fim 25. nóvember 2021 19:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Evrópudeildin: West Ham sigraði í Vín - Dramatík hjá Midtjylland
Mark Noble
Mark Noble
Mynd: Getty Images
West Ham vann Rapid Vín í Evrópudeildinni í kvöld með tveimur mörkum gegn engu.

Andreyi Yarmolenko og Mark Noble skoruðu mörkin undir lok fyrri hálfleiks.

Liðið var komið áfram í útsláttarkeppnina fyrir leiki kvöldsins en tryggði efsta sætið og þar með sæti í 8 liða úrslitum með sigrinum í kvöld þar sem Dinamo Zagreb og Genk gerðu jafntefli.

Elías Rafn Ólafsson var á bekknum er Midtjylland vann dramatískan sigur á Braga. Staðan var 2-1 fyrir Midtjylland í upphafi síðari hálfleiks en Braga jafnaði metin þegar skammt var eftir.

Þegar komið var framyfir venjulegan leiktíma fékk Midtjylland vítaspyrnu og Evander skroaði úr henni og tryggði liðinu stigin þrjú. Midtjylland er því enn í baráttunni um að komast áfram. Liðið er með 8 stig í 3. sæti stigi á eftir Braga og tveimur á eftir Rauðu Stjörnunni. Liðið mætir botnliði Ludogorets í loka umferðinni.

Celtic er dottið út fyrir loka umferðina og þarf að leika í 16 liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

Öll úrslit í Evrópudeildinni má sjá hér að neðan.

Galatasaray 4 - 2 Marseille
1-0 Alexandru Cicaldau ('12 )
1-1 Duje Caleta-Car ('30 , sjálfsmark)
2-1 Sofiane Feghouli ('64 )
2-2 Arkadiusz Milik ('70 )
3-2 Ryan Babel ('83 )
3-3 Arkadiusz Milik ('85 )

Lokomotiv 0 - 3 Lazio
0-1 Ciro Immobile ('56 , víti)
0-2 Ciro Immobile ('63 , víti)
0-3 Pedro ('87 )

Midtjylland 3 - 2 Braga
1-0 Erik Sviatchenko ('2 )
1-1 Ricardo Horta ('43 )
2-1 Gustav Isaksen ('48 )
2-2 Wenderson Galeno ('85 )
3-2 Evander ('90 , víti)

Crvena Zvezda 1 - 0 Ludogorets
1-0 Mirko Ivanic ('57 )

Bayer 3 - 2 Celtic
1-0 Robert Andrich ('16 )
1-1 Josip Juranovic ('40 , víti)
1-2 Jota ('56 )
2-2 Robert Andrich ('82 )
3-2 Moussa Diaby ('87 )

Betis 2 - 0 Ferencvaros
1-0 Cristian Tello ('5 )
2-0 Sergio Canales ('52 )

Dinamo Zagreb 1 - 1 Genk
1-0 Luka Menalo ('35 )
1-1 Ike Ugbo ('45 )

Rapid 0 - 2 West Ham
0-1 Andriy Yarmolenko ('40 )
0-2 Mark Noble ('45 , víti)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner