Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 25. nóvember 2022 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale og Ramsey fengu skelfilega einkunn
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale átti ansi erfiðan dag á skrifstofunni þegar Wales tapaði gegn Íran í riðlakeppni HM.

Bale er stærsta stjarna Wales en hann gat afskaplega lítið í þessum leik. Frammistaða hans var mikil vonbrigði.

„Ef þetta væri ekki Bale þá hefði hann verið tekinn af velli, en það þarf hugrekki til að taka hann út af þó hann sé ekki að spila vel," sagði James Collins, sérfræðingur breska ríkisútvarpsins á HM í Katar, um Bale í dag.

Lesendur BBC voru ekki heldur hrifnir af frammistöðu Bale og gáfu honum 2,56 í einkunn fyrir leikinn.

Aaron Ramsey, sem hefur ekki litið vel út á mótinu, fékk svipað lélega kosningu - hann endaði með 2,63 í kosningunni sem má finna í heild sinni hérna.

Roozbeh Cheshmi, leikmaður Íran, var valinn maður leiksins.
Athugasemdir
banner
banner