Fotbolti.net
26.01.21 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Conte fékk rautt og tveggja leikja bann

Conte náði ekki að hemja sig.

Conte náði ekki að hemja sig.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte, stjóri Inter á Ítalíu, lét dómarann Fabio Maresca heyra það í lokin á leik gegn Udinese síðasta laugardag.

Conte fékk að líta rauða spjaldið frá Maresca og hefur nú fengið tveggja leikja bann og 20 þúsund evrur í sekt frá aganefnd deildarinnar.
Í skýrslu frá nefndinni er sagt að Conte hafi ekki hætt að mótmæla þrátt fyrir að hafa verið aðvaraður. Hann hafi verið með hávær og ósæmileg orð í garð dómarans og hafi haldið áfram eftir að hann fékk rauða spjaldið.

Hegðun hans er sögð hafa verið ógnandi og móðgandi.

Inter er í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar, tveimur stigum á eftir erkifjendunum í AC Milan sem töpuðu 0-3 fyrir Atalanta á sama tíma.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter9+1525
2Lazio9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Frosinone9+817
7Napoli9+614
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta9-111
13Genoa9-510
14Lecce9-99
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Fiorentina9-105
19Parma9-105
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.