Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
   fim 26. mars 2020 19:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland tapaði gegn Rúmeníu í Efótbolta
Ísland og Rúmeníu áttust við í eFótbolta, en um var að ræða vináttuleiki í FIFA, og endaði viðureignin með 6-2 sigri Rúmena.

A-landslið þjóðanna áttu að sjálfsögðu að mætast í dag í umspili undankeppni EM, en þeim leik var frestað vegna Covid-19. Þess var gripið í tölvuleikinn FIFA.

Jóhann Ólafur Jóhannsson og Aron Þormar Lárusson léku leikina fyrir hönd Íslands. Úrslit þeirra má sjá hér að neðan en tvö stig fengust fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli.

Fyrsti leikur - Aron Þormar - 1-2

Annar leikur - Jóhann Ólafur - 2-2

Þriðji leikur - Jóhann Ólafur - 0-1

Fjórði leikur - Aron Þormar - 0-0
Athugasemdir