Knattspyrnudeild Vals tilkynnti í dag að Málfríður Erna Sigurðardóttir mun leika með liðinu í sumar. Þetta verður sautjánda tímabil hennar með meistaraflokki félagsins.
Málfríður, sem fagnar 36 ára afmæli sínu næstu helgi, er uppalin í Val og spilaði sitt fyrsta tímabil í Landssímadeildinni árið 2000.
Hún gekk til liðs við Breiðablik árið 2014 og lék þar tvö tímabil áður en hún sneri aftur í Val.
Hún hefur ákveðið að taka slaginn með liðinu í sumar og verður þetta því sautjánda tímabilið hennar með félaginu.
Málfríður á 201 leik í efstu deild með Val og hefur skorað 24 mörk. Þá á hún 33 landsleiki fyrir A-landslið Íslands.
Athugasemdir