Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 26. maí 2022 12:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Enska uppgjörið - 11. sæti: Newcastle
Newcastle endaði í 11. sæti.
Newcastle endaði í 11. sæti.
Mynd: EPA
Joelinton öðlaðist nýtt líf hjá Newcastle undir stjórn Eddie Howe.
Joelinton öðlaðist nýtt líf hjá Newcastle undir stjórn Eddie Howe.
Mynd: EPA
Callum Wilson skoraði flest mörkin.
Callum Wilson skoraði flest mörkin.
Mynd: EPA
Allan Saint-Maximin lagði upp flest mörkin.
Allan Saint-Maximin lagði upp flest mörkin.
Mynd: EPA
Steve Bruce var rekinn í október.
Steve Bruce var rekinn í október.
Mynd: Getty Images
Chris Wood og Eddie Howe ræða hér málin. Howe tók við í nóvember og Wood kom í janúar.
Chris Wood og Eddie Howe ræða hér málin. Howe tók við í nóvember og Wood kom í janúar.
Mynd: Getty Images
Bruno Guimaraes kom til Newcastle í lok janúar frá Lyon, hann kom sterkur inn.
Bruno Guimaraes kom til Newcastle í lok janúar frá Lyon, hann kom sterkur inn.
Mynd: Getty Images
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram síðastliðinn sunnudag. Í enska uppgjörinu verður tímabilið gert upp á næstu dögum á ýmsan máta. Nú er komið að því að skoða gengi Newcastle sem átti heldur betur kaflaskipt tímabil.

Newcastle United fór inni í tímabilið með hinn mjög svo umdeilda Mike Ashley sem eigenda félagsins og í stjórastólnum sat Steve Bruce. Ekki voru gerðar miklar væntingar til liðsins fyrir tímabilið.

Newcastle fór í gegnum fyrstu 8. umferðir tímabilsins án þess að vinna leik undir stjórn Bruce, liðið var aðeins með þrjú stig eftir þrjú jafntefli. Eftir að fjárfestar frá Sádi-Arabíu gengu frá kaupum á félaginu var fljótt ljóst að dagar Steve Bruce voru taldir sem stjóri félagsins. Hann stýrði liðinu í 8. umferð í 2-3 tapi gegn Tottenham og fékk svo sparkið í kjölfarið.

Leitin að nýjum stjóra tók talsverðan tíma, þrír leikir voru spilaðir í millitíðinni áður en Eddie Howe var ráðinn þann 8. nóvember. Bráðabirgðastjórinn Graeme Jones skilaði tveimur stigum úr þessum þremur leikjum. Eddie Howe náði tveimur stigum úr sínum þremur fyrstu leikjum við stjórnvölin, í fjórðu tilraun kom svo hinn langþráði sigur fyrir stuðningsmenn Newcastle. Það var 1-0 sigur á Burnley í byrjun desember.

Næst komu þrjú töp gegn Leicester, Liverpool og Manchester City áður en kom að 1-1 jafntefli við Manchester United. Nýtt ár færði Newcastle mönnum góða tíma, fyrsti tapleikur ársins kom ekki fyrr en 13. mars. Fram að þeim tíma hafði liðið spilað 8 deildarleiki á árinu og náð út úr þeim 20 stigum, algjör viðsnúningur á gengi Newcastle undir stjórn Eddie Howe.

Chelsea var fyrsta liðið á árinu til að vinna Newcastle, þessu tapi fylgdu tveir tapleikir til viðbótar gegn Everton og Tottenham. Newcastle vélin hélt svo áfram að ganga smurt, eftir þessa þriggja leikja taphrinu komu fjórir sigurleikir í röð. Tímabilið endaði svo á tveimur töpum gegn Manchester City og Liverpool ásamt tveimur sigrum á Arsenal og Burnley. Liðið var aldrei í neinni fallhættu á lokasprettinum og endaði í 11. sæti með 49 stig. Það verður mikið spennandi að sjá hversu háar fjárhæðir Eddie Howe fær í sumar til að styrkja Newcastle sem ætla sér stóra hluti á næstu árum.

Besti leikmaður Newcastle á tímabilinu?
Joelinton var besti leikmaður Newcastle á tímabilinu. Brasilíumaðurinn var færður aftar á völlinn með tilkomu Eddie Howe og öðlaðist þar með nýtt hlutverk sem hann leysti af mikilli snilld. Hann var einn af lykilmönnunum á bakvið velgengni liðsins eftir komu Eddie Howe í stjórastólinn. Joelinton var jafnframt valinn besti leikmaður tímabilsins hjá Newcastle.

Þessir skoruðu mörkin:
Callum Wilson: 8 mörk.
Bruno Guimaraes: 5 mörk.
Allan Saint-Maximin: 5 mörk.
Joelinton: 4 mörk.
Ryan Fraser: 2 mörk.
Fabian Schär: 2 mörk.
Jonjo Shelvey: 2 mörk.
Kieran Trippier: 2 mörk.
Joseph Willock: 2 mörk.
Chris Wood: 2 mörk.
Miguel Almirón: 1 mark.
Isaac Hayden: 1 mark.
Jeff Hendrick: 1 mark.
Jamaal Lascelles: 1 mark.
Sean Longstaff: 1 mark.
Javier Manquillo: 1 mark.
Jacob Murphy: 1 mark.

Þessir lögðu upp mörkin:
Allan Saint-Maximin: 5 stoðsendingar.
Ryan Fraser: 3 stoðsendingar.
Javier Manquillo: 2 stoðsendingar.
Jacob Murphy: 2 stoðsendingar.
Matt Ritchie: 2 stoðsendingar.
Fabian Schär: 2 stoðsendingar.
Joelinton: 1 stoðsending.
Dan Burn: 1 stoðsending.
Ciaran Clark: 1 stoðsending.
Bruno Guimaraes: 1 stoðsending.
Emil Krafth: 1 stoðsending.
Sean Longstaff: 1 stoðsending.
Jonjo Shelvey: 1 stoðsending.

Spilaðir leikir:
Joelinton: 35 leikir.
Allan Saint-Maximin: 35 leikir.
Jacob Murphy: 33 leikir.
Miguel Almirón: 30 leikir.
Joseph Willock: 29 leikir.
Ryan Fraser: 27 leikir.
Martin Dúbravka: 26 leikir.
Jamaal Lascelles: 26 leikir.
Fabian Schär: 25 leikir.
Sean Longstaff: 24 leikir.
Jonjo Shelvey: 24 leikir.
Emil Krafth: 20 leikir.
Javier Manquillo: 19 leikir.
Matt Ritchie: 18 leikir.
Callum Wilson: 18 leikir.
Bruno Guimaraes: 17 leikir.
Chris Wood: 17 leikir.
Dan Burn: 16 leikir.
Matt Targett: 16 leikir.
Isaac Hayden: 14 leikir.
Ciaran Clark: 13 leikir.
Karl Darlow: 8 leikir.
Dwight Gayle: 8 leikir.
Federico Fernández: 7 leikir.
Kieran Trippier: 6 leikir.
Jamal Lewis: 5 leikir.
Freddie Woodman: 4 leikir.
Paul Dummett: 3 leikir.
Jeff Hendrick: 3 leikir.

Hvernig stóð vörnin í vetur?
Newcastle fékk á sig 62 mörk á tímabilinu, þar telur ansi mikið hversu illa þeim gekk fyrir áramótin. Liðið hélt markinu hreinu í 8 leikjum.

Hvaða leikmaður skoraði hæst í Fantasy Premier league?
Frakkinn stórskemmtilegi Allan Saint-Maximin skoraði hæst í liði Newcastle, fékk 116 stig.

Hvernig spáði Fótbolti.net fyrir um gengi Newcastle fyrir tímabilið?
Fótbolti.net spáði Newcastle 16. sæti fyrir tímabilið, það má teljast vel skiljanlegt miðað við andrúmstloftið sem var í kringum félagið á þeim tímapunkti.

Enska uppgjörið
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11. Newcastle
12. Crystal Palace
13. Brentford
14. Aston Villa
15. Southampton
16. Everton
17. Leeds
18. Burnley
19. Watford
20. Norwich
Athugasemdir
banner
banner
banner