Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. maí 2022 18:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild kvenna: Markalaust í eina leik dagsins
Úr leik hjá Grindavík síðasta sumar.
Úr leik hjá Grindavík síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 0 - 0 Fjarðab/Höttur/Leiknir

Niðurstaðan var markalaust jafntefli þegar Grindavík og Fjarðab/Höttur/Leiknir áttust við í eina leik dagsins í Lengjudeild kvenna.

Leikurinn fór fram í sól í Grindavík. Bæði lið fengu ágætis tækifæri í fyrri hálfleik en inn vildi boltinn ekki.

Boltinn vildi hreinlega ekki inn í þessum leik; hvorugt liðið náði að skora.

Grindavík er með fjögur stig eftir fjóra leiki og Fjarðab/Höttur/Leiknir er með sjö stig eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni.

Þegar öll liðin eru búin að spila fjóra leiki er HK á toppnum með fullt hús og FH í öðru sæti með tíu stig. Fylkir er á botninum án stiga og Fjölnir er í næst neðsta sæti með eitt stig.
Athugasemdir
banner
banner