Stjarnan tapaði 3-1 gegn Íslandsmeisturum Víkings á Samsungvellinum. Fótbolti.net ræddi við Birni Snæ Ingason, leikmann Stjörnunnar eftir leik.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
„Þetta var skemmtilegur leikur. Mér fannst við gefa kannski of mikið af færum á okkur í fyrri hálfleik en það voru góðir kaflar inn á milli. Seinni hálfleikur var mögulega aðeins betri. Maður hugsar eftir leik að þegar við minnkum muninn í 2-1 þá er eins og við náum ekki að nýta mómentumið. Þeir byrja að liggja á okkur og ná inn þriðja markinu.“
Stjarnan vann síðast í deildinni í 2. umferð, hvað hefur vantað?
„Það vantar auðvitað stöðugleika. Það eru sumir leikir sem við höfum misst niður í tap sem er óþarfi - Sigurleikir eða leikir sem eiga allaveganna að fara jafntefli. Það er slæmt að missa allt niður upp í tap. Þetta vindur kannski upp á sig.“
Hefur svona hrina mikil áhrif á sjálfstraust liðsins?
„Það gerir það, 100 prósent. Það reynir örugglega mest á hausinn að tapa svona leikjum. Það þarf að halda áfram, það þarf ekki mikið til,“ sagði Birnir að lokum.






















