Víkingur vann 3-1 sigur á Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ í gærkvöld. Víkingur er með 25 stig eftir níu leiki og með þriggja stiga forskot á KR.
Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leikinn í gær.
Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leikinn í gær.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
„Ég er mjög sáttur. Mér fannst við stýra þessum leik. Mér fannst við þéttir, Stjarnan skapaði lítið af færum. Mér fannst við geta komist í enn betri stöðu inn í hálfleik. Annars bara mjög sáttur hvernig við brugðumst við markinu sem við fengum á okkur. Yfir höfuð mjög solid frammistaða hjá okkur.”
Víkingur hefur nú unnið átta leiki í röð í deildinni.
„Menn eru búnir að vinna hart fyrir þessu. Mæta á hverjum einasta degi og tilbúnir að reyna bæta sig á æfingum, þetta byrjar allt þar. Eins mikil klisja og það er þá er það bara rétt. Það er mikil samkeppni í liðinu og leikmenn ýta við hvorum öðrum. Einungis þannig nærðu þessum standard sem við erum búnir að sýna núna. Aftur á móti er lítið búið af mótinu og við þurfum að halda þessu áfram.”
Víkingur óskaði eftir undanþágu til að fá inn nýjan markvörð eftir að Ingvar Jónsson greindist með krabbamein.
„Þú verður að tala um þetta við Kára (Árnason). Ég er búinn að heimta að fá markmann en ég bíð enn eftir honum. Ég þarf að setja meiri pressu á Kára,” sagði Sölvi léttur og hélt áfram: „Ég held að þetta liggi á borðinu hjá KSÍ núna, við erum að skoða þessi mál akkúrat núna.”
Þá innlendis eða líka erlendis?
„Við erum að skoða allt. Það er ekkert komið á hreint. Óþarfi að nefna einhver nöfn þegar ekkert er komið á hreint en við erum að skoða markmenn.”
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.





















