Ejub Purisevic: Vorum töluvert betri í þessum leik
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Víkingur Ólafsvík fékk HK í heimsókn í kvöld í stórleik 13. umferðar Inkasso-deildar karla. Hvorugu liðinu tókst að skora í leiknum og endaði því leikurinn með 0-0 jafntefli. Annað skipti sem þessi topplið gera jafntefli í sumar í deildinni. Ejub Purisevic, þjálfari Víkings hefði viljað öll 3 stigin og fannst sínir menn eiga það skilið í leiknum
\"Mér fannst við vera töluvert betri í dag og sérstaklega í fyrri hálfleik. Fyrsta hálftímann var bara ótrulegt að við gátum ekki skapað betri færi og skorað. Leikurinn jafnaðist svo út, það er erfitt að spila á móti HK. Það var mikið um langa bolta og það getur vel verið að þetta hafi verið sanngjörn úrslit í lokin\"
Emmanuel Eli Keke var ansi oft dæmdur brotlegur fyrir litlar sakir en Ejub var ánægður með dómgæsluna framanaf en síðusta hálftímann fannst Ejub halla of mikið á sitt lið.
\"Emmanuel er búinn að vera góður í sumar en hann var ekki nógu góður í dag. Hann er góður leikmaður og á að gera miklu betur en hann gerði í dag. Ég myndi ekki þakka vörninni fyrir þetta stig, frekar myndi ég þakka öllu liðinu fyrir að hafa haldið hreinu\"
Guyon Philips kom til liðsins í vikunni og fór beint í byrjunarliðið hjá Ejub.
\"Hann fór á sína fyrstu æfingu með liðinu í gær og ég villdi bara sjá hvað ég hef í höndunum með hann en ég ætla ekki að dæma hann útfrá þessum leik\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér í tækinu fyrir ofan