Gils með augastað á þeim hraðasta - „Gerði þetta mikið hjá Jóni Páli“
Auglýsing

Fagnar marki sínu gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Vippan snyrtilega.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH ósigraðir í síðustu fimm.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ánægður undir Jóa Kalla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í 11. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fagnar marki sínu gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Gils Gíslason átti frábæra innkomu með FH gegn Val síðastliðinn sunnudag er hann skoraði bæði mörk FH í 2-0 sigri gegn Hlíðarendaliðinu.
Gils ræddi við Fótbolta.net fyrr í dag um leikinn gegn Val og tímabilið í heild sinni.

Lestu um leikinn: FH 2 - 0 Valur
„Ég reyni mitt besta þegar ég kem inn á völlinn og það heldur betur skilaði sér,“ segir Gils.
Fyrra mark kantmannsins í leiknum var snyrtileg vippa yfir Frederik Schram, markvörð Vals. „Ég gerði þetta mikið hjá Jóni Páli (Pálmasyni) í 4. flokki. Það er búin að vera mikil lægð á því núna. Ég sá að Frederik Schram kom út og ákvað að reyna þetta,“ segir Gils, hægt er að sjá bæði mörk hans hér að neðan.
Á góðu skriði
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu er FH ósigrað í síðustu fimm leikjum. „Ég bjóst við aðeins sterkari byrjun en mér finnst við hafa verið góðir. Leikirnir sem við vorum að tapa voru leikir sem við áttum ekki að tapa. Nú höfum við náð að sýna karakter í lok leikja, mér finnst það hafa verið betra núna. Fínt að sækja einhver stig núna, tala ekki um sigra,“ segir Gils aðspurður um stöðu FH.
Gils hefur komið við sögu í tólf leikjum á tímabilinu og verið í byrjunarliðinu í fjórum þeirra. „Auðvitað langar manni að byrja alla leiki. Ég var veikur á móti ÍBV og hef verið smá tæpur, þá byrjar maður auðvitað ekkert alla leiki. Heilt yfir er ég mjög sáttur við hlutverkið mitt.“
Einn sá hraðasti
Gils hefur verið nefndur sem einn af hröðustu leikmönnum deildarinnar. Hann var spurður hvort hann væri sá hraðasti?
„Maður er búinn að vera að sjá á samfélagsmiðlum að Finnur Tómas sé að ná 38 kílómetra hraða. Maður veit ekki hvort það sé tímamælir eða ekki. Ég veit það ekki, maður þarf að ná einum góðum sprett og sjá hvað verður.“
Talar um 38 kílómetra hraða, hefur þú náð því? „Ekki eins og staðan er í dag. Það kemur að því.“

Gils Gíslason átti frábæra innkomu í mikilvægum sigri Hafnfirðinga! ???????? #bestadeildin pic.twitter.com/74UDT2O4db
— Besta deildin (@bestadeildin) July 13, 2026