Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 26. júlí 2021 18:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið KR og Fylkis: Elmar og Guðmundur Steinn byrja
Theódór Elmar Bjarnason.
Theódór Elmar Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Steinn er mættur aftur í Pepsi Max-deildina.
Guðmundur Steinn er mættur aftur í Pepsi Max-deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður hart barist þegar KR og Fylkir eigast við í síðasta leik 14. umferðar Pepsi Max-deildar karla í kvöld. Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér að neðan.

Fyrir þennan leik er KR í fimmta sæti með 22 stig og Fylkir er í níunda sæti með 14 stig. Bæði lið hafa spilað 13 leiki.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Theódór Elmar Bjarnason byrjar sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deildinni í sumar en félagi hans Kjartan Henry Finnbogason er í leikbanni. Elmar kemur inn fyrir Ægi Jarl og Stefán Árni Geirsson kemur inn fyrir Kjartan Henry.

Hjá Fylki byrjar Guðmundur Steinn Hafsteinsson. Hann er að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið. Ásamt honum koma Ragnar Bragi Sveinsson og Torfi Tímoteus Gunnarsson inn fyrir Orra Svein Stefánsson, Þórð Gunnar Hafþórsson og Birki Eyþórsson.

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
16. Theodór Elmar Bjarnason
19. Kristinn Jónsson
21. Kristján Flóki Finnbogason
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
29. Stefán Árni Geirsson

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
4. Arnór Gauti Jónsson
6. Torfi Tímoteus Gunnarsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
10. Orri Hrafn Kjartansson
22. Dagur Dan Þórhallsson
28. Helgi Valur Daníelsson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
77. Óskar Borgþórsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner