Fotbolti.net
26.07.26 - 19:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

PSG hættir að eltast við Diomande - „Óhóflegar kröfur"

PSG hættir að eltast við Diomande - „Óhóflegar kröfur"
Canon

Mynd: EPA

Það bendir allt til þess að Yan Diomande, sóknarmaður Leipzig, sé á leið til Real Madrid.

Sky í Þýskalandi greinir frá því að PSG hafi dregið sig úr kapphlaupinu um leikmanninn.
„PSG hefur formlega dregið áhuga og tilboð í Yan Diomande til baka. Verðmiðinn og launakröfurnar voru algjörlega óhóflegar og skekkjandi. PSG mun ekki brjóta gegn meginreglum sínum um skynsamlega fjárhagsstjórnun og jafnvægi í leikmannahópnum," segir í yfirlýsingu frá franska félaginu.

Diomande hefur verið gríðarlega eftirsóttur en PSG og Liverpool voru lengst af orðuð við þennan 19 ára gamla Fílabeinsstrending. TalkSPORT greindi frá því að Real Madrid hafi náð samkomulagi við Leipzig en Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi þvertekur fyrir þær fréttir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.