Fotbolti.net
26.08.17 - 21:37
Elvar Geir Magnússon

Lárus Orri: Það er alltaf logn fyrir norðan

Auglýsing
Lárus Orri, þjálfari Þórs.

Lárus Orri, þjálfari Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það er alltaf logn fyrir norðan. Við náum ekkert að æfa í svona roki. Það er skelfilegt að þurfa að spila fótbolta í þessu,\"</i> sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, eftir sigur gegn Gróttu í rokleik á Seltjarnarnesi.
„Við búum víst á Íslandi, þetta verður aðeins öðruvísi íþrótt í svona veðri en við náðum þremur stigum.\"

Þór er í fjórða sæti Inkasso-deildarinnar, sex stigum frá öðru sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

„Við erum sex stigum og markatölu frá því að komast upp svo þetta er mjög langsótt. Það eina sem við getum gert er að reyna að hala inn mörgum stigum og hægt er. Nú rúllum við heim og búum okkur undir hörkuleik gegn Keflavík í næstu umferð.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar fer Lárus meðal annars yfir það hvernig tímabil Þórsara hefur verið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.