Rúnar Páll: Dómararnir gátu ekkert í dag - Allt í einu VAR upp í stúku
Auglýsing

Rúnar Páll vandaði ekki dómurum leiksins kveðjurnar eftir leik

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

„Ég er náttúrulega bara brjálaður, eftir að við skorum þetta 3-1 mark fáum við að fagna í tvær mínútur áður en hann flautar það allt í einu af. Þetta eru auðvitað bara galin vinnubrögð hjá öllum þessum fjórum snillingum sem dæmdu þennan leik. Hann réði ekkert við þetta, bara ekki neitt. Það var eins og það væri allt í einu einhver VAR dómgæsla upp í stúku, þetta er svo mikil þvæla að hálfa væri nóg."
Sagði Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar eftir 2-2 jafntefli við Val á Origo vellinum í kvöld þar sem mark var dæmt af Stjörnunni sem hefði komið þeim í 3-1 en markið var dæmt af eftir að það hafði verið flautað á.

Rúnar vandaði ekki dómurunum kveðjurnar eftir leik og sagði þá alla hafa ekkert getað í kvöld og sagði Jóhann Inga Jónsson fjórða dómara vera viðkvæman en hann hefur spjaldað Rúnar fjórum sinnum í sumar.
„Helgi var bara í þessum gír í dag, hann gat bara ekkert því miður og öll þrenningin og Jóhann þarna fjórði dómari átti ekki sinn besta leik og ég er bara mjög heitur út í þá og fékk spjald þegar einhverjar 30 sekúndur voru eftir. Ég held að þetta sé fjórða spjaldið sem Jóhann gefur mér sem fjórði dómari, hann er greinilega eitthvað viðkvæmur."
Stjarnan er í fjórða sætinu með 28 stig, 5 stigum frá 2.sætinu og Rúnar segir að þeir einbeiti sér nú bara að sínum leikjum og telur möguleika á að ná Blikum.
„Það skiptir ekki máli hvað Breiðablik gerir, við eigum eftir að mæta þeim og eigum jafn marga leiki eftir. Við mætum þeim um miðjan september en fyrst ætlum við að vinna FH og svo kemur þetta í ljós."