Fotbolti.net
26.08.26 - 20:58
Brynjar Ingi Erluson

Amin Cosic og Viking í Meistaradeildina í fyrsta sinn

Viking náði sögulegu afreki í kvöld

Viking náði sögulegu afreki í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Norska liðið Viking er komið í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Viking hefur aldrei áður komist í deildarkeppni Meistaradeildarinnar en lék þó í riðlakeppni UEFA-bikarsins tímabilið 2005-06.

Noregsmeistararnir gerðu 2-2 jafntefli við Dinamo Zagreb í fyrri leik umspilsins en unnu síðan frækinn 3-1 sigur í kvöld og tryggðu sér sæti í deildarkeppninni.

Amin Cosic er á mála hjá Viking eftir að hafa komið frá KR fyrr í sumar. Hann var ekki í leikmannahópnum í kvöld en hefur komið við sögu í einum leik síðan hann gekk til liðs við félagið.

Það verða því tvö norsk félög í Meistaradeildinni þetta tímabili, en Bodö/Glimt tryggði sér sæti þangað í gær.

AEK frá Grikklandi flaug inn í deildarkeppnina með 4-0 sigri á Levski Sofia frá Búlgaríu. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli en búlgarska liðið átti aldrei möguleika í Aþenu þar sem Barnabas Varga skoraði meðal annars tvö mörk.

Fenerbahce hafði þá betur gegn Lyon, 2-1, og vann einvígið samanlagt 3-2. Vedat Muriqi og Archie Brown skoruðu mörk tyrkneska liðsins en Malick Fofana gerði eina mark Lyon.

Framlengja þurfti hjá Celje og Slovan Bratislava eftir að báðum leikjum liðanna lauk með 1-1 jafntefli.

AEK 4 - 0 Levski (4-0, samanlagt)
1-0 Luka Jovic ('7 )
2-0 Barnabas Varga ('12 )
3-0 Barnabas Varga ('29 )
4-0 Razvan Marin ('55 , víti)

Celje 1 - 1 Slovan (Framlengt)
0-1 Andraz Sporar ('18 )
1-1 Svit Seslar ('34 , víti)

Lyon 1 - 2 Fenerbahce (2-3, samanlagt)
0-1 Vedat Muriqi ('24 )
0-2 Archie Brown ('28 )
1-2 Malick Fofana ('61 )

Viking FK 3 - 1 Dinamo Zagreb (5-3, samanlagt)
0-1 Arber Hoxha ('10 )
1-1 Zlatko Tripic ('18 , víti)
2-1 Edvin Austbo ('48 )
3-1 Tobias Moi ('50 )
Amin Cosic gekk í raðir Viking í sumar frá KR

Amin Cosic gekk í raðir Viking í sumar frá KR

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.