26.08.26 - 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Aston Villa og Everton berjast um Grealish

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jack Grealish, leikmaður Manchester City, er líklega á förum frá félaginu fyrir gluggalok, en Aston Villa og Everton eru bæði í sambandi við umboðsmann hans.
Fabrizio Romano segir að Grealish muni ákveða næstu skref á ferlinum á næstu dögum.
Grealish kom inn af bekknum í 2-1 endurkomusigri Manchester City gegn Bournemouth um helgina.
Hann var á láni hjá Everton á síðustu leiktíð og gerði þar mjög góða hluti áður en meiðsli settu strik í reikninginn.
Everton vill fá hann aftur en fær samkeppni frá Aston Villa, uppeldisfélagi Grealish.
Grealish er enn með alla möguleika opna en Romano segir fregnir af mögulegum félagaskiptum hans til Sunderland ótímabærar og að viðræðurnar séu ekki komnar jafn langt og aðrir fjölmiðlar hafa haldið fram.
Englendingurinn kom til Man City frá Villa árið 2021 fyrir 100 milljónir punda. Hann var ótrúlega mikilvægur hlekkur í liðinu sem vann þrennuna árið 2023.