Fotbolti.net
26.08.26 - 21:20
Brynjar Ingi Erluson

Enski deildabikarinn: Barry með sína fyrstu þrennu fyrir Everton

Thierno Barry skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Everton

Thierno Barry skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Everton

Canon

Mynd: EPA

Everton flaug áfram í 3. umferð enska deildabikarsins með því að vinna 4-0 útisigur á Preston í kvöld.
Franski framherjinn Thierno Barry fer frábærlega af stað á tímabilinu.

Hann skoraði í 2-0 sigri Everton á Crystal Palace í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina og fylgdi því eftir með þrennu í kvöld.

Barry kom Everton á bragðið á 25. mínútu. Kiernan Dewsbury-Hall lyfti boltanum inn fyrir vörnina á Vitali Mykolenko sem lagði hann fyrir Barry. Frakkinn gat ekki annað en skorað.

Annað markið kom á 59. mínútu. Iliman Ndiaye sendi skemmtilegan bolta inn á Dewsbury-Hall sem lét vaða. Skotið var varið út í Barry, boltinn fór af honum og í netið.

Barry fullkomnaði sína fyrstu þrennu fyrir Everton á 70. mínútu eftir hraða skyndisókn. Dewsbury-Hall fann Brennan Johnson hægra megin í teignum og hann renndi boltanum fyrir markið þar sem Barry skoraði í opið net.

Barry endurgalt Johnson greiðann skömmu síðar með frábærri stungusendingu inn á teiginn. Johnson afgreiddi færið snyrtilega og innsiglaði stórsigur Everton sem er í miklu stuði þessa dagana.

Burnley, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor, er hins vegar óvænt úr leik eftir tap gegn Bradford í vítakeppni.

Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og því var farið beint í vítakeppni. Bradford skoraði úr öllum spyrnum sínum en Zeki Amdouni og Jacob Bruun Larsen brenndu af fyrir Burnley.

Preston NE 0 - 4 Everton
0-1 Thierno Barry ('25 )
0-2 Thierno Barry ('59 )
0-3 Thierno Barry ('70 )
0-4 Brennan Johnson ('72 )

Bradford 0 - 0 Burnley (4-2 eftir vítakeppni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.