Fotbolti.net
26.08.26 - 23:44
Brynjar Ingi Erluson

Evra: Man Utd hefur ekki enn fundið arftaka minn

Patrice Evra

Patrice Evra

Canon

Mynd: EPA

Patrice Evra, fyrrverandi leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, segir félagið enn ekki hafa fundið arftaka sinn í vinstri bakverðinum.
Vinstri bakvarðarstaðan hefur reynst Manchester United til vandræða undanfarin ár.

Dennis Irwin var nánast óaðfinnanlegur í stöðunni á sínum tíma áður en Patrice Evra tók við keflinu fjórum árum síðar eftir að hafa staðið sig frábærlega með Mónakó.

Evra lék með United frá 2006 til 2014 og var þá einn af bestu vinstri bakvörðum heims. Hann segir að í kringum tuttugu leikmenn hafi spilað í stöðunni frá því hann yfirgaf félagið en enginn þeirra hafi náð að fylla skarð hans.

„Dennis Irwin er besti vinstri bakvörður í sögu Man Utd. Fólk segir að það sé ég en það er ekki rétt. Hann gat spilað báðum megin, skorað mörk og var áreiðanlegur. Það var pressan sem ég tók við en eftir að ég fór hafa tuttugu leikmenn spilað í stöðunni og enginn tekið við af mér.“

„Það vantar stöðugleika, að vera alltaf klár í slaginn og að stjórinn líti á þig sem einn af þeim fyrstu á blað í byrjunarliðinu. Það hefur vantað hjá Man Utd. Þið hlæið kannski en vitið þið hver var besti vinstri bakvörðurinn eftir að ég fór? Það var Ashley Young. Fólk hlær kannski að því en hann var besti vinstri bakvörðurinn eftir að ég fór,“
sagði Evra í þætti sínum Evra Unfiltered á Kick.

Young fór ekki að leika reglulega í vinstri bakverðinum fyrr en undir stjórn Jose Mourinho tímabilið 2017-18. Luke Shaw kom inn í liðið tímabilið eftir og þá færðist Young yfir í hægri bakvörðinn.

Shaw hefur ekki veitt nægilega mikinn stöðugleika í stöðunni og United er sagt leita að nýjum vinstri bakverði. Lewis Hall hjá Newcastle og Alejandro Balde hjá Barcelona hafa verið orðaðir við félagið undanfarna daga.
Evra segir Dennis Irwin besta vinstri bakvörð í sögu United

Evra segir Dennis Irwin besta vinstri bakvörð í sögu United

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.