Guðni eftir sögulegan sigur: Munum hlaupa yfir þær í Kaplakrika

Guðni Eiríksson var stoltur af FH liðinu eftir sögulegan sigur í fyrsta Evrópuleik kvennaliðsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson var stoltur af FH liðinu eftir sögulegan sigur í fyrsta Evrópuleik kvennaliðsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var gríðarlega stoltur af sínu liði eftir sögulegan 0-2 sigur á Apollon Ladies í fyrri leik liðanna í Evrópubikarnum.
FH lék sinn fyrsta Evrópuleik í kvennaflokki við krefjandi aðstæður og mikinn hita en Hafnfirðingar létu það ekki á sig fá.
„Þetta var ótrúlega flottur sigur hjá FH við erfiðar aðstæður og þvílíkan hita. Að þurfa að díla við það og gera það á þennan hátt, og á löngum köflum hlaupa yfir andstæðinginn, er bara frábært,“ sagði Guðni eftir leik.
Hann var sérstaklega stoltur af því hvernig leikmenn FH stóðu saman á þessum sögulega degi í sögu félagsins.
„Ég er ótrúlega stoltur af FH liðinu og stoltur af FH hjartanu. Ég er stoltur af því að við skyldum spila fyrsta leik okkar í Evrópu og við förum héðan sem sigurvegarar.“
Guðni ítrekaði þó að einungis hálft verk væri unnið. Síðari leikurinn fer fram í Kaplakrika eftir slétta viku og þar ætlar FH sér að fylgja sigrinum eftir.
„Þetta er bara fyrri hálfleikur. Seinni hálfleikurinn er eftir og hann er á Kaplakrikavelli. Þar munum við svo sannarlega hlaupa yfir þær.“
Sjáðu viðtalið í spilaranum hér að ofan
