Fotbolti.net
26.08.26 - 20:02
Brynjar Ingi Erluson

Hafrún frábær í sigri Bröndby - Emelía færist nær Meistaradeildinni

Hafrún Rakel var frábær með Bröndby

Hafrún Rakel var frábær með Bröndby

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kvennaboltinn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir skoraði og lagði upp í 5-0 stórsigri Bröndby á Subotica í Evrópubikarnum í kvöld.
Bröndby komst í þriggja marka forystu í fyrri hálfleiknum en Hafrún lagði upp þriðja markið á 21. mínútu. Hún skoraði síðan sjálf á 58. mínútu áður en hún fór af velli fimm mínútum síðar. Danska liðið fer því með þægilegt forskot til Serbíu í síðari leikinn.

Andrea Rut Bjarnadóttir kom inn af bekknum í 2-1 sigri Anderlecht á Feyenoord en Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var ónotaður varamaður hjá belgíska liðinu. Einvíginu lýkur í Rotterdam næsta fimmtudag.

Emelía Óskarsdóttir lék lokamínúturnar með Köge sem marði 1-0 útisigur á PSV í umspili Meistaradeildarinnar. Köge tók þar með stórt skref í átt að deildarkeppninni fyrir heimaleikinn í Danmörku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.