Fotbolti.net
26.08.26 - 21:57
Brynjar Ingi Erluson

Lærisveinar Yaya Toure í Meistaradeildina

Yaya Toure verður á hliðarlínunni í Meistaradeild Evrópu í vetur

Yaya Toure verður á hliðarlínunni í Meistaradeild Evrópu í vetur

Canon

Mynd: EPA

Slóvakíumeistarar Slovan Bratislava munu leika í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í annað sinn í sögu félagsins eftir dramatískan 2-1 sigur á slóvenska liðinu Celje eftir framlengingu í kvöld.
Liðin skildu jöfn, 1-1, í fyrri leiknum í Bratislava og Celje fékk því tækifæri til að tryggja sér sæti í deildarkeppninni í fyrsta sinn í sögu félagsins á heimavelli.

Heimamenn byrjuðu betur en nýttu ekki góð færi sín. Þess í stað kom Andraz Sporar gestunum yfir þegar hann lyfti boltanum yfir Zan-Luk Leban í marki Celje.

Markið kveikti í heimamönnum sem áttu jöfnunarmarkið svo sannarlega skilið miðað við gang leiksins. Það kom undir lok fyrri hálfleiks þegar Tigran Barseghyan braut á Yaya Dukuly innan teigs. Svit Seslar steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi.

Celje hafði ekki tapað heimaleik á tímabilinu og ætlaði sér greinilega ekki að láta það gerast í kvöld. Liðið skapaði þó færri færi eftir hlé en Dukuly komst næst því að koma heimamönnum yfir þegar langskot hans var varið í stöngina.

Gestirnir fengu sín færi undir lok venjulegs leiktíma en hvorugu liðinu tókst að skora og því þurfti að framlengja.

Slovan skoraði sigurmarkið á 100. mínútu. Nino Marcelli fann Cristian Martínez sem lyfti boltanum yfir Leban og í fjærhornið.

Markið tryggði Slovan sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í annað sinn á þremur árum.

Fílabeinsstrendingurinn Yaya Toure verður því á hliðarlínunni í Meistaradeildinni í vetur eftir að hafa tekið við Slovan í sumar. Hann er strax farinn að gera frábæra hluti í Slóvakíu eftir farsælan leikmannaferil með félögum á borð við Manchester City, Barcelona, Olympiakos og Mónakó.

Celje 1 - 2 Slovan (2-3, samanlagt)
0-1 Andraz Sporar ('18 )
1-1 Svit Seslar ('34 , víti)
1-2 Cristian Martinez ('100 )

Lærisveinar Yaya Toure í Meistaradeildina
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.