Fotbolti.net
26.08.26 - 19:53
Brynjar Ingi Erluson

Nítján ára með mark og stoðsendingu fyrir Tottenham

Nítján ára með mark og stoðsendingu fyrir Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Hinn 19 ára gamli Mikey Moore er með mark og stoðsendingu fyrir Tottenham sem er 2-0 yfir gegn Charlton í 2. umferð enska deildabikarsins.
Bæði mörkin komu undir lok fyrri hálfleiksins en mark Moore var stórglæsilegt.

Hann fékk boltann við vítateigslínuna og þrumaði honum upp í nærhornið. Skömmu síðar lagði hann upp annað markið fyrir Dominic Solanke með því að pota boltanum til hans inni í teignum.

Tottenham er því komið í góða stöðu fyrir síðari hálfleikinn.

Newcastle er komið í 2-1 gegn WBA en Bazoumana Toure og Harvey Barnes gerðu mörk Newcastle og þá er Everton 1-0 yfir gegn Preston. Thierno Barry skoraði markið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.