26.08.26 - 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Sigur í fyrsta byrjunarliðsleik Daniels - Dramatík hjá Lyngby

Daniel byrjaði hjá Kolding

Mynd: Kolding

Daniel byrjaði hjá Kolding

Mynd: Kolding
Daniel Ingi Jóhannesson byrjaði sinn fyrsta leik með danska liðinu Kolding sem vann 4-1 sigur á Brönderslev í 2. umferð bikarsins í dag.
Skagamaðurinn kom til Kolding á láni frá Nordsjælland á dögunum og þreytti frumraun sína í 2-2 jafntefli gegn Köge.
Hann var í byrjunarliðinu í bikarnum í dag þegar Kolding vann sannfærandi sigur þrátt fyrir að hafa lent marki undir snemma leiks. Liðið jafnaði og komst yfir fyrir hlé áður en það bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik.
Kolding tryggði sér þar með sæti í 32-liða úrslitum en Lyngby komst einnig áfram.
Davíð Helgi Aronsson, Daníel Freyr Kristjánsson og William Steindórsson voru allir í byrjunarliði Lyngby sem vann FA 2000, 1-0, eftir framlengingu.
Hinrik Harðarson kom inn af bekknum í hálfleik í 3-0 tapi Egersund gegn Haugesund í norsku B-deildinni. Egersund er í áttunda sæti með 26 stig.
Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal sem gerði 2-2 jafntefli við Moss í sömu deild. Sogndal er í ellefta sæti með 22 stig eftir nítján umferðir.