26.08.26 - 19:40
Brynjar Ingi Erluson
Tómas Bent sá rautt þegar Hearts tryggði sér sæti í Sambandsdeildinni

Mynd: Hearts/Skjáskot

Mynd: Hearts/Skjáskot
Tómas Bent Magnússon sá rautt þegar Hearts tryggði sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu með dramatískum hætti í kvöld.
Tómas byrjaði á bekknum hjá Hearts gegn Rapid frá Austurríki en kom inn á eftir aðeins fimmtán mínútur þegar Frakkinn Tom Renaud meiddist. Fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Rapid komst yfir á 34. mínútu í kvöld.
Tómas fékk gult spjald sjö mínútum síðar og var síðan vísað af velli fyrir annað gult þegar stundarfjórðungur var eftir. Þrátt fyrir að vera manni færri tókst Hearts að jafna og knýja fram framlengingu.
Calvin Miller kom Hearts yfir í framlengingunni en Rapid jafnaði undir lok hennar og því þurfti vítakeppni til að skera úr um sigurvegara. Þar hafði Hearts betur, 4-3, og tryggði sér sæti í deildarkeppninni. Tómas getur því andað léttar eftir vægast sagt viðburðaríkt kvöld.

REUS STOPS TILIO AND HEARTS ARE THROUGHHHHHHHHHHHHHHHH
— Heart of Midlothian FC (@JamTarts) August 26, 2026
Hearts | ?????
SK Rapid | ?????