Fotbolti.net
26.08.26 - 21:15
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Fimmta sinn hjá Blikum, Sunna sú fimmta og sögulegt hjá FH

Breiðablik vann stórsigur og Sunna Rún Sigurðardóttir var með þrennu.

Breiðablik vann stórsigur og Sunna Rún Sigurðardóttir var með þrennu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik skoraði átta mörk eða meira í fimmta skipti í Evrópuleik kvenna þegar liðið valtaði yfir Csíkszereda frá Rúmeníu, 8-1, í fyrstu umferð Evrópubikarsins á Kópavogsvelli í dag og íslensk lið hafa samtals náð þessum markafjölda tólf sinnum í Evrópuleikjum.

Sunna Rún Sigurðardóttir varð fimmti leikmaður Breiðabliks til að skora þrennu eða meira í Evrópuleik og sú til að afreka slíkt í Evrópukeppni kvenna.

FH varð aðeins annað íslenska félagið til að vinna sinn fyrsta leik í Evrópukeppni kvenna þegar Hafnarfjarðarliðið vann Apollon 2-0 á Kýpur í dag og þá eru liðin fjórtán ár síðan nýtt félag spilaði Evrópuleik fyrir Íslands hönd.

Nánar er fjallað um þetta í greininni hér á eftir:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.