Fotbolti.net
26.09.13 - 21:04
Alexander Freyr Tamimi

Freyr Alexandersson: Við vorum bara að byrja sko

Auglýsing
Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, var að vonum svekktur eftir 2-0 tap gegn Sviss í sínum fyrsta leik við stjórnvölinn.
„Ég vonaðist að sjálfsögðu eftir sigri. Þær komu í raun ekki mikið á óvart, þeirra bestu leikmenn eru mjög góðar. En við vissum að það eru fleiri góðar í liðinu en þær voru betri en ég átti von á,“ sagði Freyr við Fótbolta.net.

,,Við náðum ekki ró á boltann og við áttum erfitt með að spila úr öftustu línu og byggja upp spil. Það gekk ekki upp.“

Freyr viðurkennir að það hafi verið erfitt að þurfa að fara beint í sinn fyrsta leik í móti án þess að fá æfingaleiki.

,,Auðvitað var það vont að þurfa að fara í fyrsta leik í móti, á móti líka keppinautum um að komast í lokakeppnina. Það var engin óskastaða, en því miður gat ég ekkert gert í því.“

„Við þurfum bara að bæta okkar leik og takast á við staðreyndir, skoða í hverju við erum góð og í hverju við erum slök. Vinna í veikleikunum og styrkja styrkleikanna. Blessaður vertu, það er nóg eftir, við vorum bara að byrja sko. Við höldum áfram og sækjum stig.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.