Þýskalandsmeistarar FC Bayern hafa verið í samningsviðræðum við David Alaba undanfarnar vikur.
The Athletic hefur heimildir fyrir því að Alaba sætti sig ekki við neitt minna heldur en fimm ára samning með 400 þúsund pund í vikulaun á meðan besta boð Bayern til þessa er fjögurra ára samningur með 290 þúsund pund á viku.
Alaba er meðal annars eftirsóttur af Manchester City og á þessi austurríski landsliðsmaður aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Bayern.
Hinn 28 ára gamli Alaba er metinn á 65 milljónir evra. Hann er talinn í heimsklassa sem miðvörður, vinstri bakvörður og djúpur miðjumaður, auk þess að geta spilað á vinstri kanti og miðjunni.
Athugasemdir