Fotbolti.net
26.09.26 - 17:03
Brynjar Ingi Erluson

Sex marka sigur hjá Thelmu

Thelma Karen færist nær titlinum

Thelma Karen færist nær titlinum

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir og stöllur hennar í Häcken eru með fimm stiga forystu á toppnum eftir að hafa gjörsigrað Norrköping 6-0 í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Häcken hefur verið á miklu flugi og er í góðri stöðu til að verja titilinn í ár.

Thelma kom inn af bekknum þegar hálftími var eftir og eftir innkomu hennar skoraði liðið fjögur mörk.

Sigdís Eva Bárðardóttir kom þá inn á sem varamaður hjá Norrköping þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Häcken er á toppnum með 55 stig, fimm stigum meira en Hammarby sem er í öðru sæti, en Norrköping er í næstneðsta sæti með 16 stig.

Daníela Dögg Guðnadóttir lék síðustu mínúturnar þegar Álasund gerði 1-1 jafntefli við Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni.

Úrslitin eru þungt högg fyrir Álasund sem er í titilbaráttu við Brann og er nú með 41 stig, sex stigum frá toppnum. Selma Sól Magnúsdóttir sat á bekknum hjá Rosenborg en kom ekki við sögu. Liðið er í 3. sæti með 37 stig, fjórum stigum á eftir Álasundi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.