26.09.26 - 15:58
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Valdi rétta tímapunktinn til að opna markareikninginn

Bryndís Arna skoraði sitt fyrsta mark

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik átti frábæran síðari hálfleik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bryndís Arna skoraði sitt fyrsta mark

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 1 - 2 Breiðablik
1-0 Allison Patricia Clark ('38 )
1-1 Agla María Albertsdóttir ('69 , víti)
1-2 Bryndís Arna Níelsdóttir ('79 )
Lestu um leikinn

Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu 2-1 endurkomusigur á ÍBV í Bestu deild kvenna á Hásteinsvelli í dag og eru aftur komnar með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.
Fátt var um fína drætti í fyrri hálfleik og lítið um færi, en Eyjakonur náðu þó að taka forystuna undir lok hans.
Viktorija Zaicikova tók hornspyrnu og eftir klafs í teignum barst boltinn til Allison Patriciu Clark sem kom honum í netið.
ÍBV fékk síðan gott tækifæri til að tvöfalda forskotið. Fridrikka Marie Clementsen kom boltanum á Allison Grace Lowrey sem fann Clark í hlaupinu, en Herdís Halla Guðbjartsdóttir náði að slá boltann yfir markið.
Blikar mættu af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og fóru strax að skapa sér færi. Guðný Geirsdóttir var í miklu stuði í marki ÍBV, en á endanum tókst gestunum að brjóta ísinn.
Kristín Klara Óskarsdóttir braut á Katelyn Duong í teignum þegar hún var að fara að láta vaða og vítaspyrna dæmd. Agla María Albertsdóttir fór á punktinn og jafnaði af öryggi.
Blikar héldu áfram að pressa stíft og um tíu mínútum síðar skoraði Bryndís Arna Níelsdóttir sitt fyrsta mark í sumar. Það reyndist heldur betur mikilvægt.
Bryndís hafði komið inn af bekknum skömmu áður. Agla María átti skot úr aukaspyrnu og Guðný reyndi að grípa boltann en missti hann frá sér. Líf Joostdóttir van Bemmel náði boltanum og kom honum aftur fyrir markið þar sem Bryndís potaði honum yfir línuna.
Það reyndist sigurmarkið og Blikar eru því aftur komnar með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar. FH á þó leik inni gegn Grindavík/Njarðvík á morgun og getur jafnað Breiðablik að stigum með sigri.
Ef FH vinnur þann leik verða enn meiri líkur á því að liðin mætist í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni 23. október.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 19 | +28 | 40 |
| 2 | FH | 19 | +25 | 40 |
| 3 | ÍBV | 19 | -2 | 30 |
| 4 | Stjarnan | 19 | +3 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 19 | -4 | 23 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 19 | -11 | 22 |