26.09.26 - 17:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hákon varði víti en Eistar jöfnuðu svo

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistland er búið að jafna metin gegn Íslandi í leik sem er núna í gangi í Þjóðadeildinni.
Það er alveg klárlega hægt að segja að markið hafi verið sanngjarnt miðað við hvernig seinni hálfleikurinn byrjaði.

Það var Maksim Paskotsi sem skoraði markið með góðum skalla.
Hákon Rafn Valdimarsson í marki Íslands kom engum vörnum við, en hann er búinn að vera besti maður Íslands í leiknum og varði víti áður en markið kom.
Ísak Snær Þorvaldsson braut klaufalega í teignum en Hákon Rafn varði virkilega vel.
Hér fyrir neðan má sjá vítavörslu Hákonar en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Sport.