26.09.26 - 19:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári setur út á margt í varnarleik Íslands

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason og Bjarni Guðjónsson, sérfræðingar á Sýn Sport, voru ósáttir með varnarleik Íslands í jöfnunarmark Eista í dag.
Liðin mættust í fyrsta leik Þjóðadeildarinnar en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Eistar jöfnuðu metin þegar Maksim Paskotsi skoraði með skalla eftir fyrirgjöf.

„Línan er of lág. Þeir eiga að vera búnir að ýta þessu hærra upp. Þótt það sé ekki endilega pressa á þeim þá eru þeir að gefa boltann til baka. Jón Dagur á að gera betur og loka á þessa fyrirgjöf. Hann fær að setja boltann á góðu löppina og setja hann inn í," sagði Kári.
„Daníel (Daníel Leó Grétarsson) snýr í fyrsta lagi vitlaust. Hann horfir bara á það sem er fyrir framan sig sem gerir það að verkum að hann treystir því ekki að Mikael sé að vinna sína vinnu, sem hann er að gera. Hann hafnar í einskismannslandi og er ekki að dekka sinn mann sem skallar hann bara inn."
KJartan Atli Kjartansson spurði Kára hvað varnarlínan hefði getað gert betur.
„Ég vil að þeir standi á vítateigslínunni og þá endar þetta í höndunum á Hákoni," sagði Kári.