26.09.26 - 11:22
Brynjar Ingi Erluson
Ngumoha utan hóps í kvöld

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska ungstirnið Rio Ngumoha spilar ekki með Englendingum gegn Spánverjum í Þjóðadeildinni í kvöld, en þetta segir John Cross hjá Mirror.
Ngumoha var valinn í enska landsliðið fyrir þetta verkefni og má búast við því að hann fái tækifæri í einhverjum af þeim fjórum leikjum sem liðið spilar, en það verður ekki í kvöld.
Samkvæmt reglum UEFA mega aðeins 23 leikmenn vera í leikmannahópnum og þurfti Thomas Tuchel, þjálfari Englands, því að skilja einn eftir utan hóps.
Í þetta sinn varð Ngumoha fyrir valinu, þrátt fyrir að því hefði verið haldið fram í nokkrum miðlum að hann gæti jafnvel byrjað leikinn.
Ngumoha er 18 ára og talinn einn efnilegasti vængmaður Englands. Hann æfði með enska landsliðinu fyrir HM í sumar og stóð sig vel í frumraun sinni, en Tuchel gat ekki tekið hann með á mótið þar sem hann var ekki hluti af upprunalega 55 manna úrtakshópnum.