Fotbolti.net
26.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Nike hættir við samstarf með Benzema vegna fortíðar hans

Nike hættir við samstarf með Benzema vegna fortíðar hans
Canon

Mynd: Al Hilal

Fataframleiðandinn Nike hætti við að taka upp auglýsingamyndband með Karim Benzema í vikunni vegna vafasamrar fortíðar leikmannsins.
Benzema er í dag 38 ára gamall og samningslaus eftir að hafa raðað inn mörkunum í Sádi-Arabíu síðustu ár, en þar áður var hann mikilvægur hlekkur í ógnarsterku liði Real Madrid.

Nike hætti við að taka upp með Benzema útaf því að saga leikmannsins passar ekki við gildin sem fyrirtækið vill koma á framfæri.

Nike neitaði að útskýar nákvæma ástæðu en Benzema hefur verið partur af nokkrum vafasömum málum í fortíðinni. Hann var til dæmis gripinn í rannsókn lögreglunnar í París fyrir rúmum áratugi síðan eftir að hafa sofið hjá barnungri vændiskonu. Sú var aðeins 16 ára gömul þegar Benzema var tvítugur, en vændiskonan laug til um aldur og sagðist vera 18 ára. Franck Ribéry, fyrrum landsliðsfélagi Benzema í Frakklandi, var einnig gripinn í sömu rannsókn fyrir að borga fyrir kynlíf með sömu 16 ára stelpu.

Tæpum áratugi eftir það mál var Benzema fundinn sekur um tilraun til fjárkúgunar gegn landsliðsfélaga sínum Mathieu Valbuena. Óprúttnum aðila tókst að brjótast inn í síma Valbuena og stela viðkvæmu myndbandi þaðan. Hann og vinir hans vildu peninga frá Valbuena til að myndbandið færi aldrei í dreifingu en voru ekki með samskiptaleið við hann, því hafði æskuvinur hans Benzema samband til að nýta fótboltamanninn fyrir samskipti. Benzema tók hlutverki sínu aðeins of alvarlega og náðust upptökur af honum að tala við fyrrnefndan æskuvin sinn í síma sem urðu til þess að hann var dæmdur fyrir fjárkúgun.

Benzema fékk skilorðsbundinn eins árs fangelsisdóm og þurfti að greiða 75 þúsund evrur í sekt vegna málsins. Aðrir í fjárkúgunarhringnum fengu ýmist 15 til 30 mánaða fangelsisdóma.

Þetta eru stærstu skandalar á ferli Benzema en vandræðin virðast eiga auðvelt með að þefa hann uppi. Hann sakaði Didier Deschamps um kynþáttafordóma á sínum tíma, var nokkrum sinnum tekinn fyrir mikinn hraðakstur og var ásakaður af ráðherra í Frakklandi um að vera partur af hryðjuverkahópnum Bræðralag múslima.

Benzema var samningsbundinn Adidas stærsta hluta ferilsins en sá samningur rann út fyrir nokkrum árum og ætlaði Nike að semja við framherjann, þar til fyrirtækið lauk bakgrunnsskoðun á sögu hans.
Nike hættir við samstarf með Benzema vegna fortíðar hans
Canon

Mynd: EPA

Nike hættir við samstarf með Benzema vegna fortíðar hans
Canon

Mynd: ÍTF

Nike hættir við samstarf með Benzema vegna fortíðar hans
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.