Fotbolti.net
26.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Spænskur landsliðsmaður gaf allan heimsmeistarabónusinn

Spænskur landsliðsmaður gaf allan heimsmeistarabónusinn
Canon

Mynd: EPA

Spænskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að ónefndur landsliðsmaður Spánar hefur ákveðið að gefa allan HM-bónusinn sinn til starfsmanna spænska fótboltasambandsins.
Spánn vann heimsmeistaramótið í sumar og fékk hver og einn leikmaður hópsins eina milljón evra í bónus fyrir að sækja titilinn, sem er annar heimsmeistaratitill í sögu karlalandsliðsins. Ein milljón evra samsvarar um 135 milljónum íslenskra króna.

Laun fótboltamanna eru stjarnfræðilega há en það er gríðarlega mikið af starfsfólki sem starfar í kringum fótboltaheiminn, hvort sem það er hjá félagsliðum eða fótboltasamböndum. Margt af þessu starfsfólki er láglaunafólk sem starfar oft á tíðum í návígi við moldríkra fótboltamenn.

Það er ekki fáheyrt innan fótboltaheimsins að leikmenn og þjálfarar hjálpi lægra launuðu starfsfólki fjárhagslega, en upphæðin sem hér um ræðir er gríðarlega há. Ein milljón evra samsvarar um það bil tveggja mánaða launum eftir skatt hjá meðalmanni í spænska landsliðinu.

Einstaklingurinn gjafmildi sem um ræðir í fréttinni óskaði að láta nafns síns ekki getið.

Spænska fótboltasambandið fékk rúmlega 50 milljónir evra fyrir þátttöku sína á HM og rann langstærsti hlutinn beint til leikmanna. Einstaklinginum gjafmilda finnst ekki sanngjarnt að fá margfalt hærri laun heldur en starfsfólk landsliðsins fyrir tæplega tveggja mánaða vinnu í sumar.
Spænskur landsliðsmaður gaf allan heimsmeistarabónusinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.