26.09.26 - 18:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjóðadeildin: Lúxemborg lagði Búlgaríu - Stórsigur hjá Finnum

Joel Pohjanpalo

Mynd: EPA

Leandro Barreiro

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joel Pohjanpalo

Mynd: EPA
Lúxemborg er á toppnum í riðli Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir sigur á Búlgaríu í dag.
Búlgaría komst yfir þegar Asen Chandarov batt endahnútinn á góða sókn þegar hann setti boltann í netið af stuttu færi. Lúxemborg jafnaði metin þegar Leandro Barreiro komst inn á teiginn og skoraði.
Vincent Thill var hetja Lúxemborg þegar hann skoraði sigurmarkið eftir rúmlega klukkutíma leik.
Finnland fór hamförum þegar liðið valtaði yfir San Marínó. Staðan var orðin 3-0 í hálfleik og Finnar gengu frá þessu í seinni hálfleik með fjórum mörkum. San Marínó var manni færri nánast allan seinni hálfleikinn.
Færeyjar náðu forystunni gegn Kasakstan en þeim tókst að jafna metin og tryggja sér stig. Gunnar Vatnhamar, fyrrum leikmaður Víkings, var í byrjunarliði Færeyja og Ari í Haraldstovu, markvörður ÍBV, sat á bekknum.

Búlgaria 1 - 2 Lúxemborg
1-0 Asen Chandarov ('18 )
1-1 Leandro Barreiro ('37 )
1-2 Vincent Thill ('65 )
Færeyjar 1 - 1 Kasakstan
1-0 Aki Samuelsen ('14 )
1-1 Temirlan Erlanov ('26 )
San Marínó 0 - 7 Finnland
0-1 Joel Pohjanpalo ('5 )
0-2 Adrian Svanback ('14 )
0-3 Benjamin Kallman ('33 )
0-4 Leo Walta ('50 )
0-5 Leo Walta ('55 )
0-6 Joel Pohjanpalo ('79 )
0-7 Joel Pohjanpalo ('88 , víti)
Rautt spjald: Alessandro Golinucci, San Marino ('51)