Fotbolti.net
26.09.26 - 15:52
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin: Oblak lokaði búrinu

Jan Oblak, markvörður Slóveníu, var maður leiksins

Jan Oblak, markvörður Slóveníu, var maður leiksins

Canon

Mynd: EPA

Slóvenía 0 - 0 Skotland
Skotland þurfti að sætta sig við eitt stig eftir markalaust jafntefli gegn Slóveníu í B-deild Þjóðadeildarinnar í Ljubljana í dag.

Heimamenn voru sterkari í fyrri hálfleik. Andraz Sporar kom boltanum snemma í netið en markið var dæmt af og tíu mínútum síðar fékk hann dauðafæri sem hann setti framhjá.

Vanja Drkusic átti síðan skalla í utanverða stöngina og virtist boltinn einfaldlega ekki ætla inn hjá Slóvenum. Skotar náðu þó að vinna sig betur inn í leikinn undir lok hálfleiksins og var Robbie Ure nálægt því að koma þeim yfir þegar skot hans fór einnig í tréverkið.

Skotar voru síðan líklegri í síðari hálfleik og fékk Oli McBurnie algert dauðafæri þegar hann slapp einn í gegn. Hann reyndi hins vegar að leika á Jan Oblak í markinu og sú tilraun gekk ekki upp.

Skotar fengu fleiri tækifæri til að hirða öll stigin en Oblak var vandanum vaxinn og tryggði sínum mönnum að lokum stig.

Jafntefli voru líklega sanngjörn úrslit eftir tvo ólíka hálfleika, en það var samt hálf ótrúlegt að leikurinn skyldi enda markalaus. Báðar þjóðir eru með eitt stig í A-riðlinum. Skotar mæta næst Sviss á meðan Slóvenía mætir Norður-Makedóníu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.