26.09.26 - 17:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjóðadeildin: Vonbrigði á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland 1 - 1 Eistland
1-0 Andri Lucas Guðjohnsen ('45 )
1-0 Kevor Palumets ('52 , misnotað víti)
1-1 Maksim Paskotsi ('64 )
Lestu um leikinn

Ísland fékk Eistland í heimsókn í fyrsta leiknum í C-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Búist var við þægilegum sigri Íslendinga en raunin varð önnur.
Íslenska liðinu gekk till að skapa sér færi í fyrri hálfleiknum. Ísland varð fyrir áfalli eftir hálftíma leik þegar Albert Guðmundsson þurfti að fara af velli vegna meiðsla. Hann lenti í samstuði og lenti mjög illa á öxlinni.
Eistar fengu dauðafæri stuttu síðar en Hákon Rafn Valdimarsson varði stórkostlega.
Ísland náði forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Andri Lucas Guðjohnsen skallaði boltann í netið eftir hnitmiðaða fyrirgjöf frá Hákoni Arnari Haraldssyni.
Eistar komu sterkir út í seinni hálfleikinn og Hákon Rafn þurfti aftur að taka á stóra sínum. Eistar fengu síðan vítaspyrnu og Hákon gerði sér lítið fyrir og varði hana.
Eistum tókst að jafna metin eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Maksim Paskotsi skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Rasmus Peetson.
Kristall Máni Ingason fékk úrvalsfæri til að koma Íslandi yfir í lokin. Það kom sending inn á teiginn, Ísak Snær Þorvaldsson lét boltann fara. Hann barst á Kristal en skotið beint á Karl Hein í marki Eistana.
Orri Steinn fékk allra síðasta færið en skallinn slakur og beint á Hein. Nær komust Íslendingar ekki og vonbrigða jafntefli niðurstaðan.