26.09.26 - 08:01
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Söguleg tengsl milli Íslands og Eistlands

Sigurmarki Kolbeins Sigþórssonar gegn Eistlandi árið 2014 fagnað. Þjóðirnar mætast í áttunda sinn á Laugardalsvellinum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þó Ísland og Eistland mætist í dag í fyrsta skipti í „alvöru” mótsleik karlalandsliða í fótbolta er óhætt að segja að mikil tengsl hafi verið á milli íslenskrar og eistneskrar knattspyrnu undanfarna áratugi.
Leikur Íslands og Eistlands hefst á Laugardalsvellinum klukkan 16 en þetta er fyrsti leikur beggja liða í Þjóðadeild UEFA 2026-2027. Hin tvö liðin í riðlinum eru Lúxemborg og Búlgaría en Ísland mætir þeim næsta þriðjudag (úti) og næsta laugardag (heima), áður en íslenska liðið fer til Eistlands og spilar þar útileikinn annan þriðjudag.
Af nógu er að taka þegar tengsl Íslands og Eistlands eru skoðuð nánar. Ekki bara í fótboltanum því árið 1991 varð Ísland fyrst allra þjóða til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands þegar eistneska þjóðin losaði sig undan valdi Sovétríkjanna og lýsti yfir sjálfstæði.
En það er fótboltinn sem er hér til umfjöllunar og þar má meðal annars nefna að fjórir Íslendingar úr sömu fjölskyldu sem á ættir að rekja til Eistlands hafa klæðst íslenskum landsliðsbúningi og þrjú þeirra hafa verið landsliðsfyrirliðar Íslands.
Íslendingur þjálfaði eistneska landsliðið í fjögur ár við góðan orðstír og um leið eitt besta félagslið landsins.
Núverandi formaður KSÍ skoraði þrennu í landsleik gegn Eistlandi og líka bróðir landsliðsþjálfarans.
Feðgar tóku þátt í sama landsleiknum milli Eistlands og Íslands og þá voru íslenskir bræður andstæðingar í sama leik.
Eistar hafa aðeins einu sinni náð að sigra Íslendinga í sjö vináttulandsleikjum þjóðanna.
Einn Íslendingur hefur leikið í efstu deild í Eistlandi og einn Eisti hefur leikið í efstu deild á Íslandi.