Tottenham ræðir um Dibling - Williams orðaður við Arsenal og Spurs - Arsenal leiðir kapphlaupið um Nypan
   mán 27. janúar 2025 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýsku meistararnir gera tilboð í efnilegan leikmann Man City
James McAtee með Ilkay Gundogan.
James McAtee með Ilkay Gundogan.
Mynd: Getty Images
Þýsku meistararnir í Bayer Leverkusen hafa gert tilboð í James McAtee, leikmann Manchester City.

Þetta herma heimildir Sky í Þýskalandi en um er að ræða lánstilboð með möguleika á kaupum.

McAtee er 22 ára gamall og leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig leikið úti á hægri kanti.

McAtee gerði flotta hluti á láni hjá Sheffield United síðustu tvær leiktíðir en hefur ekki fengið mikinn spiltíma undir stjórn Pep Guardiola á tímabilinu sem er núna í gangi.

Samningur hans rennur út eftir 18 mánuði og eru mörg félög að fylgjast með stöðu mála hjá honum, en Leverkusen er líklegur áfangastaður þessa stundina.
Athugasemdir
banner
banner
banner