Sky og BT Sports hafa samþykkt að vera með beinar útsendingar af öllum úrvalsdeildarleikjunum sem eru eftir af tímabilinu, verði það klárað á næstu mánuðum. Mirror greinir frá þessu.
Þetta inniheldur 15:00 leikina á laugardögum, en yfirleitt má aðeins sýna beint frá einum þeirra. Þessu yrði breytt, erlendum aðdáendum deildarinnar til sérstaklega mikils fagnaðar.
Yfirvöld eru smeyk um að hörðustu stuðningsmenn félaga myndu mæta fyrir utan leikvanga sinna liða þrátt fyrir samkomubannið.
Stefnt er á að hefja úrvalsdeildina aftur sem fyrst, með viðeigandi varúðarráðstöfunum. Fundað verður um framhaldið 3. apríl.
Athugasemdir