Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 27. mars 2020 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
McClean sektaður og látinn eyða Instagram
Mynd: Getty Images
Stoke er búið að sekta James McClean og láta hann eyða aðgangi sínum á Instagram eftir myndbirtingu af sér með börnunum sínum.

McClean, sem er þrítugur, sat fyrir framan börnin sín eins og kennari nema að hann var með lambhúshettu. Undir myndina skrifaði hann: „Kennslustund dagsins - Saga."

Þessi ummæli féllu í grýttan jarðveg enda var hann augljóslega að vitna í ofbeldisfulla sögu Írlands, þar sem hryðjuverkamenn gengu um með lambhúshettur og frömdu hin ýmsu ódæðisverk.

McClean er írskur og á 65 leiki að baki fyrir landsliðið. Hann birti færsluna í gríni en brosir ekki núna eftir að tveggja vikna laun voru dregin af honum fyrir athæfið.

„James McClean hefur verið sektaður um tveggja vikna laun og hefur samþykkt að eyða aðgangi sínum á Instagram. Hann áttar sig á mistökum sínum og hefur beðist afsökunar," segir í yfirlýsingu frá Stoke.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner