Fotbolti.net
27.04.19 - 23:08
Kristófer Jónsson

Gaui Baldvins: Gjörsamlega meinað að skora úr hjólhestaspyrnum

Auglýsing
Guðjón tekur hjólhestaspyrnuna að marki.

Guðjón tekur hjólhestaspyrnuna að marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla lauk fyrr í kvöld með stórleik Stjörnunnar og KR sem að endaði 1-1. Guðjón Baldvinsson, leikmaður Stjörnunnar, var svekktur með að fá ekki meira úr leiknum.

„Þetta er ákveðin vonbrigði miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Mér fannst við stýra leiknum vel en það vantaði svona gæðin á síðasta þriðjungnum til að klára allar þessar sóknir."
Stjörnumenn spiluðu allan seinni hálfleikinn manni fleiri og voru líklegri aðilinn. Litlu munaði að Guðjón skoraði draumamark með hjólhestaspyrnu en Beitir Ólafsson varði meistaralega frá honum.

„Þetta hefði verið helvíti skemmtilegt. Ég hef oft reynt þetta en mér gjörsamlega meinað að skora úr hjólhestaspyrnum. En hann varði þetta vel."sagði Guðjón um atvikið.

Nánar er rætt við Guðjón í spilaranum að ofan.
Gaui Baldvins: Gjörsamlega meinað að skora úr hjólhestaspyrnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaui Baldvins: Gjörsamlega meinað að skora úr hjólhestaspyrnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaui Baldvins: Gjörsamlega meinað að skora úr hjólhestaspyrnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaui Baldvins: Gjörsamlega meinað að skora úr hjólhestaspyrnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.