Fotbolti.net
27.04.21 - 12:00
Fótbolti.net

Meistaraspáin - Hvað gerir Chelsea í Madríd?

<b>Meistaraspáin</b> - Hvað gerir Chelsea í Madríd?
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Undanúrslitin í Meistaradeild Evrópu hefjast í kvöld. Meistaraspáin er á sínum stað. Sérfræðingar í ár eru Kristján Guðmundsson og Guðmundur Steinarsson.

Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást 3 stig en 1 stig ef rétt tákn er á leiknum.


Kristján Guðmundsson

Real Madrid 1 - 1 Chelsea
Hörku einvígi sem ræðst í seinni leiknum á Brúnni. Madrid verður nálægt því að vinna leikinn í kvöld en það er erfitt að vinna leiki gegn Chelsea þessa dagana og þess vegna spái ég 1-1. Við munum upplifa tvo taktíska leiki á milli tveggja mjög sterkra leikmannahópa sem Zidane og Tuchel eru að vinna skemmtilega með. Mörkin koma úr skyndisókn og föstu leikatriði. Veisla.

Guðmundur Steinarsson

Real Madrid 1 - 2 Chelsea
Bæði lið búin að koma mér aðeins á óvart. Hef verið að tala Chelsea frekar niður en hitt. En mennirnir hans Tuchel hafa verið að ná í góð úrslit á útivöllum í keppninnni og koma sér í fína stöðu fyrir seinni leikina. Real Madrid hafa líka komið mér á óvart, hafa verið alls konar vandræði hjá þeim í vetur en eru samt í undanúrslitum og gætu þegar öllu er á botninn hvolft á flott tímabil. Ætla að spá að Chelsea haldi áfram að ná í góð úrslit.

Fótbolti.net - Aksentije Milisic

Real Madrid 1 - 0 Chelsea
Þetta verður lokaður leikur þar sem Thomas Tuchel mætir til þess eins að ná jafnteflinu. Real eru með mikla reynslu á þessu stigi keppninnar og það verður þeirra aðalmaður sem setur eitt og klárar þennan leik 1-0, Karim Benzema.

Staðan í heildarkeppninni
Guðmundur Steinarsson - 10
Fótbolti.net - 10
Kristján Guðmundsson - 7
Real Madrid fær Chelsea í heimsókn í kvöld.

Real Madrid fær Chelsea í heimsókn í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Hvað gera Tuchel og félagar?

Hvað gera Tuchel og félagar?

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.