Fotbolti.net
27.05.18 - 19:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kristján Guðmunds: Ekkert smá afrek að vinna leikinn

Auglýsing
Kristján var ekki alveg svona ánægður í dag.

Kristján var ekki alveg svona ánægður í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV fagnaði sínum fyrsta sigri í Pepsi-deild karla í sumar er liðið heimsótti Keflavík ídag. Lokatölur urðu 3-1, ÍBV í vil. Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, er feginn því að fyrsti sigurinn sé kominn.

„Ég er verulega sáttur að vinna leikinn, það er ekkert smá afrek. Við gerðum marga hluti mjög vel og þetta er bæting,\" sagði Kristján að leik loknum í Keflavík.
„Þau færi sem við fengum nýttum við mjög vel. Það var kannski það sem skildi á milli, á meðan færin hjá Keflavík fóru í tréverkið þá vorum við að setja okkar færi beint í markið.\"

Sindri Snær Magnússon, fyrirliði ÍBV, skoraði tvö mörk í dag.

„Honum líður vel hérna eins og langflestum öðrum. Sindri gerir sér alveg grein fyrir því að hann verður að leiða þetta lið áfram.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.