Fotbolti.net
27.05.21 - 23:10
Aksentije Milisic

Ragnar dregur sig úr landsliðshópnum af persónulegum ástæðum

Ragnar dregur sig úr landsliðshópnum af persónulegum ástæðum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ragnar Sigurðsson hefur dregið sig úr landsliðshópnum út af persónulegum ástæðum. Þetta var tilkynnt á Twitter síðu KSÍ nú í kvöld.
Ragnar, sem er án félags, verður því ekki með þegar Ísland mætir Mexíkó, Færeyjum og Póllandi í komandi landsliðsverkefni. Ragnar var mættur með landsliðinu til Dallas í Bandaríkjunum en hefur nú ákveðið að draga sig úr hópnum.

Það vantar marga lykilleikmenn í landsliðshópinn en þar má nefna Gylfa Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Hannes Þór Halldórsson, Alfreð Finnbogason og Kára Árnason.

Færsluna frá Knattspyrnusambandinu í kvöld á Twitter má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.